Fyrstu skrefin

Þetta námskeið er örugglega aðeins öðruvísi en mörg önnur námskeið sem þú hefur tekið. Á þessu námskeiði þarft þú að velja þér námsbækur og velja sjálf/ur sum af þeim verkefnum sem þú vinnur. Þess vegna skiptir það miklu máli að setja sig vel inn í skipulag námskeiðsins sem allra fyrst.

  • Skráðu þig endilega á Facebook síðu námskeiðsins
  • Skoðaðu og skráðu þig á námskeiðsvefinn og settu mynd af þér á vefinn
  • Lestu námskeiðslýsinguna vandlega og áttaðu þig á hæfniviðmiðunum.
    … og spáðu í og skráðu helst hjá þér þín eigin markmið með því að sækja þetta námskeið
  • Skoðaðu síðuna um þemu námskeiðsins. Þar er yfirlit yfir innihald alls námskeiðið.
  • Kynntu þér listann yfir lesefni námskeiðsins og veldu þér og pantaðu sem yfirlitsbók.
  • Byrjaðu að hugsa um verkefnin; hvaða verkefni höfða til þín .
  • Þá er sniðugt að renna yfir aðal bókina sem þú velur og búa þér til yfirlit yfir viðfangsefni hennar og hvað þú ímyndar þér að þú munir læra á því að lesa hvern kafla fyrir sig og jafnvel hvernig það lesefni geti hjálpað þér að ná hæfniviðmiðum námskeiðsins og markmiðum þínum.
  • Á þessu námskeiði skiptir miklu máli að við vinnum saman og hjálpumst að, þannig að virk  þátttaka þín í tímum OG á vefnum (hér á námskeiðsvefnum og í Facebook hópnum) hefur veruleg áhrif á árangur þinn á námskeiðinu og hversu ánægjuleg reynslan verður af því að taka námskeiðið.

Skildu eftir svar